WordPress.is

Íbætur

Á þessari síðu eru taldar upp íbætur sem snúa sérstaklega að notkun íslenskunnar eða á annan hátt henta sérstaklega íslenskum notendum.

Fangamarkalagfæring

Stafirnir þ, ð og æ eru ekki réttilega umritaðir í fangamörkum (slugs) sem WordPress býr til út frá titlum færslna og síðna. Þessi íbót lagfærir það. Hjá þeim sem ekki nota UTF-8 sem stafatöflu þá breytir þessi íbót umritun ð frá dh í d.

http://wordpress.is/saekja/ibaetur/iceslugs.tar

WP-RFC204 (óþörf eftir útg. 2.2)

Tölvupóstur sem sendir WordPress sendir frá sér er kóðaður skv. UTF-8 stafatöflunni eins og allur annar texti innan kerfisins. Efnislýsing tölvupóstsins er hins vegar ekki kóðuð og kemur sú villa í ljós þegar kerfið notar annað mál en ensku. Þá er von brengluðum efnislýsingum, sbr. Samþykktu eða synjaðu: âHalló h… Sum póstforrit uppgötva og lagfæra villuna sjálf þegar pósturinn berst en mörg gera það ekki. Þessi íbót lagfærir þessa langværa villu.

http://jameslick.com/wp-rfc2047/

Íslenskar gæsalappir

Hér á vefnum er að finna leiðbeiningar um hvernig breyta má íbót Kimmo Suominen fyrir finnskar gæsalappir svo hún virki fyrir íslensku.

http://wordpress.is/saekja/icequote.phps