WordPress.is

Leiðbeiningar við uppsetningu

Þessi síða lýsir því hvernig íslenska þýðingarskráin er sett upp fyrir WordPress.

Byrjaðu á því að sækja is_IS.mo þýðingarskrána héðan. Hana þarf að setja í möppuna languages undir wp-includes sem er í möppu kerfisins. Þegar WordPress er sett upp í fyrsta sinn er mappan languages ekki til staðar og þarf því að búa hana til (mkdir languages).

Eftir að skráin hefur verið sett á sinn stað inni á vefþjónunum þarf til viðbótar að segja kerfinu að það eigi nú að nota íslensku þýðingarskrárnar. Það er gert með því að breyta eftirfarandi línu í skránni wp-config.php sem er að finna grunnmöppu kerfisins.

define ('WPLANG', '');

þannig að hún líti svona út:

define ('WPLANG', 'is_IS');

Núna ættu íslensku þýðingarskrárnar að vera notaðar.